Tilgangur 

Veita notanda sem er ekki hluti af stofnun sem er í þjónustu hjá Umbru aðgang að beiðnakerfinu. 

Viðkomandi skal vera skráður í hópinn: PA – Gestaaðgangar tæknilegra tengiliða. 

Ábyrgð

Þjónustuborð Umbru sér um að bæta notendum í hópinn PA – Gestaaðgangar tæknilegra tengiliða eftir samþykkta beiðni. 

Innskráning í beiðnakerfi 

  1. Notandi fer á slóðina: https://umbra.beidnakerfi.is/support/login 
  2. Á innskráningarsíðunni velur notandi:  Viðskiptavinir Umbru 
  3. Næst velur notandi: GOV – Starfsmenn ráðuneyta 
  4. Notandi slær inn netfang sitt. 
  5. Velja skal:  Choose passkey 
  6. Skanna QR-kóðann sem birtist á skjánum með farsíma eða öðru tæki sem styður passkey. 
  7. Eftir skönnun birtist gluggi þar sem netfang notandans er sýnt ásamt valkostinum: Stay signed in? 
  8. Notandi velur Já eða Nei eftir eigin ósk. 
  9. Að því loknu hefst MFA auðkenning (Multi-Factor Authentication). 
  10. Þegar MFA hefur verið staðfest fæst aðgangur að beiðnakerfinu. 

 

Til athugunar

  • Aðgangur virkar aðeins ef notandinn hefur verið skráður í hópinn PA – Gestaaðgangar tæknilegra tengiliða. 
  • Notandinn þarf að hafa aðgang að MFA auðkenningu og tæki sem styður passkey. 
  • Mælt er með að notandi noti Microsoft Authenticator eða aðra samþykkta passkey-lausn.