Tilgangur greinarinnar

Microsoft notar Copilot sem samheiti yfir fjölmargar gervigreindarlausnir. Þær eru þó ekki ein og sama þjónustan heldur sjálfstæðar vörur með mismunandi tilgang, leyfisskilmála, gagnagrunna, öryggisstýringar og stjórnun.


Þessi grein fjallar eingöngu um Microsoft 365 Copilot leyfið sem Umbra hefur heimilað til notkunar innan skýjageira ríkisins.


Greinin á ekki við um aðrar Copilot vörur frá Microsoft nema sérstaklega sé tekið fram.


Hvaða leyfi er verið að virkja?

Leyfið sem verið er að bjóða er:


  • Microsoft 365 Copilot (User Subscription Add-on)


Þetta er viðbótarleyfi sem er úthlutað á hvern notanda ofan á gilt Microsoft 365 grunnleyfi.


Með þessu leyfi fær notandi aðgang að Microsoft 365 Copilot í þeim Microsoft 365 forritum og þjónustum sem leyfið nær til, svo sem:

  • Word
  • Excel
  • PowerPoint
  • Outlook
  • Teams
  • Loop
  • Microsoft 365 Copilot app

Microsoft 365 Copilot nýtir vinnugögn sem notandi hefur þegar heimild til að sjá, svo sem tölvupóst, skjöl, Teams samtöl, fundi og annað efni innan Microsoft 365.


Copilot veitir ekki nýjar aðgangsheimildir heldur nýtir eingöngu þær heimildir sem notandinn hefur þegar.


Microsoft 365 Copilot og Microsoft 365 Copilot Chat

Mikilvægt er að greina á milli þessara tveggja þjónusta.

Microsoft 365 Copilot ChatMicrosoft 365 Copilot
Innifalið í hæfum Microsoft 365 áskriftumKrefst sérstaks Microsoft 365 Copilot leyfis
AI-spjall með Enterprise Data ProtectionAI-aðstoð samþætt Microsoft 365 vinnuumhverfinu
Byggir fyrst og fremst á upplýsingum af vefnum og gögnum sem notandi setur sjálfur innGetur auk upplýsinga af vef og því sem notandi setur inn nýtt vinnugögn notandans sem notandi hefur þegar aðgang að.
Hefur ekki sjálfvirkan aðgang að skjölum, tölvupósti eða Teams gögnum Getur unnið með skjöl, tölvupóst og annað efni sem notandi hefur heimild til að sjá innan Microsoft umhverfis.
Hentar vel fyrir almennar fyrirspurnir, textagerð og hugmyndavinnuHentar einnig til vinnslu eigin vinnugagna, samantekta, greininga og sjálfvirkrar aðstoðar í Microsoft 365


Í einföldu máli má segja að:

  • Copilot Chat er öruggt fyrirtækjaspjall.
  • Microsoft 365 Copilot er vinnuaðstoð sem nýtir gögn úr Microsoft 365 umhverfi notandans.

Það er Microsoft 365 Copilot leyfið sem þessi skjölun fjallar um.


Hvaða Copilot vörur falla utan gildissviðs?

Microsoft býður jafnframt upp á fjölmargar aðrar vörur sem bera Copilot heitið.  Þær eru ekki hluti af þessari innleiðingu og falla ekki undir þessa skjölun.


Þar má meðal annars nefna:

  • GitHub Copilot, Microsoft Security Copilot, Microsoft Copilot Studio, Dynamics 365 Copilot, Microsoft Copilot for Service, Power Platform Copilot, Power Apps Copilot, Power Automate Copilot, Microsoft Fabric Copilot, Power BI Copilot, Azure AI Foundry tengdar Copilot lausnir, Pay-as-you-go Copilot þjónustur og sérsmíðaðir agents


Þótt þessar vörur beri allar Copilot heitið eru þær sjálfstæðar lausnir sem geta unnið með önnur gögn, notað aðrar stýringar.  Þær geta haft í för með sér aukna gjaldtöku og aðra öryggis- og persónuverndarforsendur sem ávalt þarf að meta sértækt áður en varan er samþykkt til notkunar.


Ekki skal því líta svo á að samþykki fyrir Microsoft 365 Copilot feli sjálfkrafa í sér samþykki fyrir öðrum Copilot vörum.


Áhættumat áður en ný Copilot vara er tekin í notkun

Hver Copilot vara verður að fara í sjálfstætt mat áður en hún er tekin í notkun innan skýjageira ríkisins.


Slíkt mat getur meðal annars tekið til:

  • upplýsingaöryggis, persónuverndar, gagnavinnslu, leyfisskilmála, kostnaðarlíkans, stjórnunarmöguleika, rekstraráhrifa, samþættinga við önnur kerfi.

Sama á við um nýja virkni sem Microsoft bætir við núverandi Copilot vörur, svo sem:

  • sérsmíðaða agents, Copilot Studio lausnir, Graph Connectors, viðbótargagnagrunna, Pay-as-you-go þjónustur og aðrar samþættingar við ytri kerfi.


Slík virkni verður ekki heimiluð nema að undangengnu áhættu mati og samþykktu verklagi.


Áherslu atriði þessarar greinar er því

Innleiðing nær eingöngu til Microsoft 365 Copilot leyfisins sem úthlutað er á notendur samkvæmt gildandi verklagi.


Allar aðrar Copilot vörur eða viðbótarþjónustur Microsoft teljast utan gildissviðs þessarar innleiðingar þar til framkvæmd hefur verið sérstök áhættugreining, öryggisúttekt og formleg ákvörðun um notkun þeirra.