Nýjir notkunarskilmálar hafa verið útfærðir í þeim skýjageirum ríkisins sem eru í rekstri Umbra og jafnframt bætt við kröfu um að skilmálarnir séu samþykktir áður en aðgangur er veittur gestanotendum í Public Administration skýjageiranum; slík krafa var þegar fyrir hendi í Government og Judicial skýjageirunum.


Þessa nýju skilmála má nálgast hér að neðan sem skjöl til nánari skoðunar, einnig eru hér enskar útgáfur af skilmálunum fyrir erlenda aðila sem má hala niður og afhenda.


Þessum skilmálum er ætlað að vera almennir grunnskilmálar um meðhöndlun gagna en hver ríkisaðili má útfæra og framfylgja frekari trúnaðaryfirlýsingum eftir þörfum með sínum gestum, verktökum o.þ.h.