Beiðnakerfi Umbru


Umbra heldur úti beiðna- og upplýsingakerfi fyrir ríkisaðila og starfsmenn þeirra sem eru í rekstri hjá Umbru. Í þessu kerfi má finna svör við spurningum sem kunna að koma upp, eða aðilar geta búið til þjónustubeiðnir ef þörf er á aðstoð sem ekki er hægt að finna svör við í kerfinu.


  • Viðskiptavinur í beiðnakerfi stofnast þegar send er beiðni í fyrsta skipti (Sendu beiðni á support@publicadministration.is eða support@judicial.is ef þú kemst ekki inn í beiðnakerfið).
  • Aðgang að beiðnakerfi er stýrt í gegnum Entra á viðkomandi skýjageira, viðskiptavinur þarf að vera til sem tengiliður til að geta skráð sig inn


Innskráning í beiðnakerfi Umbru


Hægt er að komast inn í beiðnakerfið eftir nokkrum leiðum, allt eftir því hvaða skýjageira hver notandi tilheyrir. Leiðbeiningar hér að neðan ná yfir alla skýjageira Umbru.


Skref 1

Fyrirfram skilgreindur aðili getur skráð sig inn í beiðnakerfið sem viðskiptavinur frá slóðinni http://pa.beidnakerfi.is og smellt þar á "Innskráning takkann".


(Ef óskað er eftir aðgangi í kerfið skal senda beiðni á support@publicadministration.is)

Skref 2

Viðkomandi velur svo réttan hnapp. Viðskiptavinir t.d. smella á "Innskráning hér" hnappinn eins og sýnt er í skjáskotinu hér að neðan.

Hægt er að spara skref 1 hér á undan með því að fara beint á slóðina https://pa.beidnakerfi.is/support/login

Skref 3

Hér velur aðili skýjageira sem hann tilheyrir. Segja má að flestar stofnanir séu í Public Administration geiranum.

Skref 4

Notandi er fluttur á Microsoft 365 auðkenningarsíðu til auðkenningar. Tæknilegur tengiliður auðkennir sig með sama auðkenni og notað er í Microsoft 365 umhverfi ríkisins.